1. fundarboð, aðalþing MSÍ 2011

11.10.2011
Fundarboð MSÍ þings 12. nóvember 2011
Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Reykjavík.

11. október. 2011

Kæru formenn,

Hér með er boðað til formannafundar aðildarfélaga MSÍ og Þings Mótorhjóla og Snjósleðaíþróttasambands MSÍ sem haldið verður laugardaginn 12. nóvember 2011 í fundarsal á annari hæð í húsakynnum ÍSÍ að Engjavegi 6 í Reykjavík.

Formannafundur hefst kl: 10:30 – 13:00

Matarhlé frá kl: 13:00 – 14:00

MSÍ þing hefst kl: 14:00

Dagskrá þingsins verður haldin samkvæmt lögum MSÍ.

Stjórn MSÍ vill minna aðildarfélögin á mikilvægi þess að mæta á þingið og taka virkan þátt í stefnumótun sambandsins.

Formenn aðildarfélaga eru beðnir að skila inn kjörbréfum sinna aðildarfélaga samkvæmt lögum MSÍ.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Karls Gunnlaugssonar formanns MSÍ á kg@ktm.is

Dagskrá Þings MSÍ 12. nóvember 2011

Dagskrá Þings Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands 2011:

1. Þingsetning

2. Kosning 3 manna kjörbréfanefndar.

3. Kosning þingforseta.

4. Kosning þingritara.

5. Skýrsla stjórnar lögð fram.

6. Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram.

7. Umræður og samþykkt reikninga.

8. Ávarp gesta

9. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.

10. Lagabreytingatillögur.

11. Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði.

12. Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem lögð hafa verið fyrir þingið og þingmeirihluti leyfir.

13. Umræður og atkvæðagreiðsla um lagabreytingatillögur og framkomin mál.

14. Kosningar:

a) Stjórn og varastjórn, sbr. 10. grein

b) 2 skoðunarmenn reikninga.

c) Fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem Íþróttaþing ÍSÍ fer fram.

d) Kosning dómenda dómstóls MSÍ.

15. Þingslit.

Allar kosningar skulu vera skriflegar nema aðeins sé stungið upp á jafnmörgum og kjósa skal.

f.h. stjórnar MSÍ

Karl Gunnlaugsson

formaður MSÍ