1. umferð Íslandsmótsins í Enduro CC fer fram í Bolaöldu

4.5.2011

1. umferð í Íslandsmótaröð MSÍ í Enduro CC fer fram laugardaginn 14. maíá akstursíþróttasvæði VÍK við Bolaöldu. Tafist hefur að opna skráningu í keppnina þar sem engin nothæf svæði hafa fundist vegna bleytu. Veðurfar í mars og apríl hefur ekki verið hagstætt og var farið að líta út fyrir að fresta yrði keppninni. Stjórn VÍK kom saman í dag í Bolaöldu og voru farnir prufuhringir um svæðið og lofar það góðu enda svæðið tekiðótrúlega vel við sér síðustu þrjá daga en þar vr allt á kafi í snjó um síðustu helgi.

Skráning mun opna á morgun hér á msisport.is og einnig verða birtar uppfærðar Enduro CC reglur ásamt keppnisdagskrá. Helstu breytingar frá síðasta ári verða að aftur verða keyrðar tvær umferðir á keppnisdag. Meistaradeild, Tvímenningur og B flokkur munu allir keyra saman í brautinni og verða ræstir með 30 sek. millibili. Meistaradeild og Tvímenningur verða keyrðir á AMB tímatökubúnaðinum líkt og verið hefur en til stendur að keyra B flokk á “bólu” tímatökubúnaði líkt og gert hefur verið á Klaustri, þetta þýðir að keppendurí B flokk þurfa ekki að útvega sér tímatökusendir. Allar nánari upplýsingar munu koma fram hér á msisport.is næstu daga.