Forseti ÍSÍ Ólafur E. Rafnson er látinn.

19.6.2013

Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, Ólafur Eðvarð Rafnsson, er látinn, fimmtugur að aldri.

Ólafur varð bráðkvaddur í Sviss nú fyrr í dag þar sem hann sótti fund í miðstjórn FIBA World, Alþjóða Körfuknattleikssambandsins. ÍSÍ greinir frá þessu í tilkynningu. Ólafur starfaði sem lögmaður og rak eigin lögmannsstofu í Hafnarfirði. Hann var formaður Körfuknattleikssambands Íslands frá árinu 1996 til 2006 en það ár var hann kosinn forseti ÍSÍ. Ólafur var kjörinn forseti FIBA Europe árið 2010. Hann tók í lok síðasta mánaðar við stöðu forseta framkvæmdastjórnar Smáþjóðaleikanna. Ólafur stundaði sjálfur körfuknattleik um árabil með Haukum og lék m.a. með landsliði Íslands.

Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

Í tilkynningu frá ÍSÍ segir að þróttahreyfingin harmi fráfall góðs félaga og öflugs foringja.