Fyrsta umferð Íslandsmóts MSÍ í Motocross fer fram núna um helgina laugardaginn 8. júní á aksturíþróttasvæði UMFS að Hrísmýri, Selfossi.
MSÍ vill benda keppendum á að dagskrá Íslandsmótsins hefur verið breytt lítillega fyrir keppnistímabilið 2013. Helsti tilgangur þessara breytinga er að stytta viðveru keppenda og starfsmanna á keppnisdag.
Því sem hefur verið breytt er eftirfarandi:
Hér eftir verða hjól ekki skoðuð fyrir keppni. Í stað hefðbundinnar skoðunar verður skoðunarmaður MSÍ á staðnum sem mun gera úrtakskönnun á keppnishjólum à meðan keppni stendur. Keppendur geta átt von á því hvenær sem er á keppnisdegi að þurfa vera tilbúnir með hjólin til skoðunar ef þess er krafist. Standist hjólið ekki þessa úrtakskönnun þà geta keppendur átt von á því að þurfa gera úrbætur áður en áfram er haldið. Það er því mjög mikilvægt að eigendur keppnishjóla að vera með þessa hluti í lagi allan keppnisdaginn.
Atriði sem MSÍ kemur til með að skoða á hjólum eru sömu atriði og gamla fyrirkomulagið gerði ráð fyrir. Sem dæmi eru þetta hlutir eins og að hjálmur sé í lagi og ekki með djúpum rispum,handföng heil og ekki með opnum endum. Kúplings og bremsuhaldföng séu ekki brotin og með oddhvössum brúnum, Plöst séu ekki brotin,bremsur séu í lagi og keppandi geti framvísað annaðhvort skráningarnúmeri eða staðfestingu fyrir tryggingum. Einnig verða framkvæmdar hávaðamælingar á keppnishjólum.
Athugið að forráðarmenn keppenda undir 18 ára verða eins og áður að skila inn undirritaðri þáttökuyfirlýsingu sem er að finna á msisport.is undir „reglur“.
Önnur breyting sem hefur verið gerð er að tímataka hefur verið stytt í öllum flokkum.
Þriðja breytingin er að Moto tími hefur verið styttur lítillega í MX Open / MX2.
MSÍ vonar að með þessum breytingum verði hugsanlega auðveldara að fá fólk til starfa við keppnirnar þar sem að keppnisdagurinn hefur verið styttur.

