Um næstu helgi fer fram MX of Nation undir 21 árs í Belgíu. Þetta er í fertugasta sinn sem keppnin fram en hún heitir “Coupe de l’Avenir” 2 Íslenskir keppendur munu taka þátt í ár og er það í fyrsta skiptið sem Íslendingar eru með í keppninni. Eyþór Reynisson og Guðbjartur Magnússon verða fulltrúar Íslands og liðsstjóri er Reynir Jónsson. Hægt er að finna allar upplýsingar um keppnina á http://www.coupedelavenir.be en þarna hafa flestir bestu ökumenn heimsins byrjað sinn feril. Vonandi gengur þetta vel hjá “strákunum okkar” og munum við vonandi geta sent fullskipað lið í þessa keppni á næsta ári.