1. umferð Ís-Cross á Mývatni 29. janúar

21.1.2011

1. umferð Íslandsmótsins í Ís-Cross fer fram á Mývatni laugardaginn 29. janúar. Keppendur ATH. nú rennur skráningartími alltaf út kl: 21:00 á þriðjudagkvöldi fyrir keppnishelgi. Ekki verður um neinar undantekningar að ræða með skráningu eftir að skráningarfrestur rennur út. Við viljum benda keppendum á að athuga aðgang sinn að heimasíðu MSÍ tímanlega, ekki verður tekið við símtölum á elleftu stundu ef keppendur ná ekki að skrá sig inn. Þeir sem eru í vandræðum með innskráningu þurfa að hafa samband við formann þess aðildarfélags MSÍ sem viðkomandi er skráður í. Það er hægt að skrá sig inn á heimasíðuna án þess að klára skráningu í viðkomandi keppni til þess að athuga hvort innskráning virkar. Keppt verður í Opnum flokki, Vetrardekkjaflokki, Kvennaflokki, Unglingaflokki (keyrir með Vetrardekkjaflokks ef 5 eða fleiri skrá sig) og 85cc flokki (keyrir með Kvennaflokki ef fleiri en 5skrá sig). Öllum keppendum er boðið frítt í Jarboðin að keppni lokinni og er um að gera að nýta sér það. Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar sér um keppnishaldið og eins og flestir vita klikkar það ekki.

Stjórn MSÍ