Formannafundur og MSÍ þing 14. nóvember 2009

20.10.2009
Fundarboð MSÍ þing 14. nóvember 2009
Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Reykjavík.

Reykjavík, 14. október. 2009

Kæru formenn,

Hér með er boðað til formannafundar aðildarfélaga MSÍ og Mótorhjóla og Snjósleðaíþróttaþings MSÍ sem haldið verður laugardaginn 14. nóvember 2009

í fundarsal á annari hæð í húsakynnum ÍSÍ að Engjavegi 6 í Reykjavík.

Formannafundur hefst kl: 10:30 – 12:30

Matarhlé frá kl: 12:30 – 13:00

MSÍ þing hefst kl: 13:00

Dagskrá þingsins verður haldið samkvæmt lögum MSÍ.

Stjórn MSÍ vill minna aðildarfélögin á mikilvægi þess að mæta á þingið og taka virkan þátt í stefnumótun sambandsins

Dagskrá MSÍ Þings 14. nóvember 2009

Dagskrá Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttaþings 2009:

1. Þingsetning

2. Kosning 3 manna kjörbréfanefndar.

3. Kosning þingforseta.

4. Kosning 1. og 2. þingritara.

5. Skýrsla stjórnar lögð fram.

6. Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram.

7. Umræður og samþykkt reikninga.

8. Ávarp gesta

9. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.

10. Kosning þingnefnda.

11. Lagabreytingatillögur.

12. Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði.

13.Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem lögð hafa verið fyrir þingið og þingmeirihluti leyfir.

14.Þingnefndir starfa.

15.Þingnefndir gera grein fyrir störfum sínum.

16.Umræður og atkvæðagreiðsla um lagabreytingatillögur og framkomin mál.

17.Kosningar:

a) Stjórn og varastjórn, sbr. 10. grein

b) 2 skoðunarmenn reikninga

c) Fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem Íþróttaþing ÍSÍ fer fram.

18. Þingslit.

Allar kosningar skulu vera skriflegar nema aðeins sé stungið upp á jafnmörgum og kjósa skal.

f.h. stjórnar MSÍ

Karl Gunnlaugsson

Formaður MSÍ

2025 © Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasamband Íslands - Íþróttamiðstöðinni Engjavegi 6 - 104 Reykjavík - msisport.is - msi@msisport.is

Vefhönnun © Vefsala.com