Reglur MSÍ um þáttöku í “MX of Nation”
- Til að öðlast keppnisrétt í “MX of Nation” þarf viðkomandi að vera Íslenskur ríkisborgari, vera félagi í aðildarfélagi MSÍ og hafa keppt í meistaradeild í Íslandsmótinu í MX-Open / MX-2 á árinu sem keppni fer fram.
- Stjórn MSÍ skipar liðsstjóra fyrir “MX of Nation” keppnisliðið.
- Liðsstjóri í samvinnu við stjórn MSÍ skipar í keppnisliðið.
- Eftir 4. umferð Íslandsmótsins (eða fyrir lokafrest FIM) verður “MX of Nation” keppnisliðið valið.
- 3 keppendur verða valdir til þáttöku á “MX of Nation” 2009
- Við val á 1. og 2. keppanda liðsins skulu valdir tveir efstu keppendur í Íslandsmóti í MX-Open eftir 4. umferð og skulu þeir flokkast í MX-1 og MX-Open flokka fyrir “MX of Nation”
- 3. keppnismaður liðsins skal valinn efsti keppandi í Íslandsmóti í MX-2 eftir 4. umferð Íslandsmótsins og flokkast hann í MX-2 flokk á “MX of Nation”
- Ef keppandi tekur ekki sæti sitt eða forfallast skal leyta til 3. keppanda í Íslandsmóti í MX-Open til þess að leysa af hólmi keppendur samkv. 6. gr. Leyta skal til 2. keppenda í Íslandsmóti í MX-2 til þess að leysa af hólmi keppanda samkv. 7. gr.
- Ef ekki tekst að skipa í 3 manna keppnislið eftir þessum reglum, 6.gr. 7.gr og 8.gr. áskilur stjórn MSÍ sér rétt til þess að skipa í liðið í samráði við liðsstjóra.
- Þegar keppnisliðið hefur verið skipað heyrir liðið undir stjórn liðsstjóra sem fylgir liðinu til keppni á “MX of Nation.
- Keppendur munu fá ferðastyrk frá MSÍ en munu sjálfir þurfa að standa undir kostnaði við keppnishjól og aðstoðarmenn ásamt öðrum kostnaði.
- MSÍ mun leita leiða til þess að afla keppnisliðinu styrkja í samráði við liðsstjóra til þess að standa undir kostnaði og munu styrkir deilast jafnt á keppendur.
- MSÍ hefur fullt vald yfir merkingum á keppnishjólum og keppnisgöllum keppenda.
- Keppendur geta verið með sína eigin kostendur en þeir þurfa þó samþykki MSÍ og liðstjóra fyrir sínum kostendum og skal leitast við að ekki verði hagsmunaárekstrar þar á.
- Liðsmenn geta þurft að ganga undir lyfjapróf áður en haldið verður á MxofN eftir nánari ákvörðun liðsstjóra og stjórnar MSÍ
- Ákvarðanir stjórnar MSÍ og liðstjóra eru endanlegar og er ekki hægt að afrýja þeim.
Stjórn MSÍ
Reykjavík. 1. nóvember. 2008
www.msisport.is

