Opinn fyrirlestur í World class Laugum
Fyrir þjálfara og aðra áhugasama
Fimmtudaginn 16. ágúst klukkan 18.00-19.00
Ókeypis aðgangur
Í hefðbundinni styrktarþjálfun er lögð ofuráhersla á styrktaræfingarnar, einhverjum snerpuæfingum jafnvel bætt við og almenn teygjurútina notuð. Til eru fjöldi rannsókna sem segja að þetta er ekki leiðin til að þjálfa með meiðslaforvarnir í huga, og í rauninni þarf ekki rannsóknir til að segja
okkur þetta. Hin háa meiðslatíðni sem er augljós er næg til að benda okkur á að eitthvað má betur fara.
Í þessum klukkustunda langa fyrirlestri verður farið í “nýjungar” í styrktarþjálfun, en styrktarþjálfun fyrir íþróttamenn og þá sem vilja almennt lyfta sér til heilsubótar hafa þróast frá svokölluðum
líkamsræktaræfingakerfum (bodybuilding), sem hafa verið ráðandi, í yfirgripsmeiri æfingakerfi sem leggja áherslu á að styrkja veikari þætti í stoðkerfi viðkomandi ÁÐUR en meiðsl verða að veruleika. Þessi hugmyndafræði nýtir sér einnig skynhreyfiþjálfun í ríkum mæli og styrktar- og
snerpuþjálfun með áherslu á rétta líkamsstöðu og notkun dýpri vöðvakerfa. Teygjur byggja á vöðvalengdarmælingum eða greiningu á stoðkerfi til að vita hvaða vöðva ber að teygja og hvaða vöðva skal láta í friði. Með þessu móti verður styrktarþjálfun einstaklingsmiðuð og hámarks árangur næst. Með hámarks árangri er sérstaklega átt við lægri meiðslatíðni, meiri vellíðan og
styrktar- og snerpuaukningu sem nýtist betur við íþróttaiðkun. Það er ekki furða að styrktarþjálfun erlendis hefur verið að þróast í þessa átt á seinustu 15-20 árum eða svo. Staðan nú er sú að varla er hægt að lesa greinar frá styrktarþjálfurum í fremstu röð eða samtökum sem eru ekki byggðar á ofangreindri þjálfunarhugmyndafræði. Því miður hefur farið lítið fyrir þessu hér á landi og kennsla í styrktarþjálfun hefur byggst nær eingöngu á líkamsræktarhugmyndafræði. í fyrirlestrinum verður farið í hvernig svona æfingarkerfi eru uppbyggð og fræðin á bakvið þau.
Fyrirlesari: Helgi Jónas Guðfinnsson
NASM og CHEK 2 Einkaþjálfari
Kennari við ÍAK <http://www.akademian.is/Desktopdefault.aspx/tabid-11/> einkaþjálfaranámið

