Laugardaginn 30. júní fór fram önnur umferð íslandsmótsins í motocross í Ólafsvík. Met þátttaka var í keppninni eða 122 keppendur í 7 flokkum. Búið var að legga mikla vinnu í brautina og unnið var langt fram á nótt daginn fyrir keppni við það að vökva brautina ásamt því að bera rykbindiefni á viðkvæmustu staðina. Brautarstjóri tók þá ákvörðum að laga brautina nokkrum sinnum til þess að tryggja öryggi keppanda. Þrátt fyrir það var töluverð vinna hjá sjúkraflutningamönnum en engin alvarleg óhöpp urðu þó.
Fyrst á ráslinu voru 85 kvennaflokkur og opin kvennaflokkur sem eru keyrðir saman. Þar voru 26 keppendur, 9 í 85 kvennafloki og 17 í opnum kvennaflokki.
85 kvennaflokkur
1 780 Bryndís Einarsdóttir 47
2 542 Signý Stefánsdóttir 47
3 183 Helga Valdís Björnsdóttir 40

Opinn kvennaflokkur
1 132 Karen Arnardóttir 50
2 209 Sandra Júlíusdóttir 42
3 611 Guðný Ósk Gottliebsdóttir 36

Næst var 85 flokkur en þar voru 18 keppendur og úrslit dagsins eru eftirfarandi.
1 899 Eyþór Reynisson 50
2 670 Bjarki Sigurðsson 42
3 430 Hafþór Grant 42

Í MX unglingaflokki voru 32 keppendur. Til þess að flokknum verði skipt þurfa minnst 38 keppendur að skrá sig í flokkinn. Úrslit dagsins eru eftirfarandi.
1 277 Ásgeir Elíasson 75
2 210 Freyr Torfason 62
3 900 Heiðar Gretarsson 60
Í MX1 og MX2 voru 45 keppendur skráðir, 30 í MX1 og 15 í MX2. Eftir tímatöku komast 24 hröðustu áfram í MX1 og MX2 hinir fara í MX B flokk. MX B flokkur er ekki keyrður til íslandsmeistara en verðlaunað er fyrir daginn.

MX 1
1 4 Einar Sverrir Sigurðarson 67
2 270 Valdimar Þórðarson 65
3 66 Aron Ómarsson 57

MX 2
1 434 Brynjar Þór Gunnarsson 24
2 259 Guðmundur Þórir Sigurðsson 16
3 404 Örn Sævar Hilmarsson 12

MX B
1 669 Atli Már Guðnason 43
2 71 Ívar Guðmundsson 40
3 182 Haraldur Björnsson 38
Öll nánari úrslit má sjá á hér og hér má sjá stöðuna í íslandsmótinu.
AÍH og MFS

