Aukaþing MSÍ 29. nóvember 2014

12.11.2014
Seinna fundarboð aukaþing MSÍ 29. nóvember 2012
Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Reykjavík.

Reykjavík, 11. nóvember. 2014

Kæru formenn,

Hér með er boðað til formannafundar aðildarfélaga MSÍ og aukaþings MSÍ sem haldið verður laugardaginn 29. nóvember 2014 í fundarsal á annari hæð í húsakynnum ÍSÍ að Engjavegi 6 í Reykjavík.

Formannafundur hefst kl: 10:00 – 12:30

Matarhlé frá kl: 12:30 – 13:30

Aukaþing MSÍ hefst kl: 13:30 – 15:30

Dagskrá aukaþingsins verður haldin samkvæmt lögum MSÍ.

Stjórn MSÍ vill minna formenn aðildarfélaga á mikilvægi þess að mæta á formannafund og aukaþingið og taka virkan þátt í stefnumótun sambandsins

Vinsamlega tilkynnið þáttöku til Karls Gunnlaugssonar formanns MSÍ á kg@ktm.is

Dagskrá aukaþings MSÍ 2014:

1.Þingsetning

2.Kosning 3 manna kjörbréfanefndar.

3.Kosning þingforseta.

4.Kosning þingritara.

5.Skýrsla stjórnar lögð fram.

6.Endurskoðaðir reikningar sambandsins lagðir fram.

7.Umræður og samþykkt reikninga.

8. Ávarp gesta

9.Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram.

10.Lagabreytingatillögur.

11. Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði.

12. Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem lögð hafa verið fyrir þingið og þingmeirihluti leyfir.

13. Umræður og atkvæðagreiðsla um lagabreytingatillögur og framkomin mál.

14.Kosningar:

a)Stjórn og varastjórn, sbr. 10. grein

b) 2 skoðunarmenn reikninga.

c)Fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem Íþróttaþing

ÍSÍ fer fram.

d)Kosning dómenda dómstóls MSÍ.

15.Þingslit.

Allar kosningar skulu vera skriflegar nema aðeins sé stungið upp á jafnmörgum og kjósa skal.

Stjórn MSÍ:

Karl Gunnlaugsson, formaður. 2015

Hrafnkell Sigtryggsson, meðsjórnandi. 2015

Sverrir Jónsson, meðstjórnandi. 2015

Guðbjartur Stefánsson, meðstjórnandi. 2014 (Gefur kost á sér til endurkjörs.)

Hafsteinn Eyland, meðstjónandi. 2014 (Gefur ekki kost á sér til endurkjörs.)

Varastjórn MSÍ:

Björk Erlingsdóttir, 2014

Jón Bjarni Jónsson, 2014

Jóhann Pétur Vilhjálmsson, 2014