Bikarmót Sólbrekku 10. júlí 2010

5.7.2010
  Laugardaginn 10. júlí fer fram bikarmót í Sólbrekku, keppt verður í 85cc
flokki, Kvennaflokki,
B flokki og B 40+ flokki, Unglingaflokki og MX Open (MX2 teljast með MX
Open)
Búið er að breyta Sólbrekkubraut og hefur akstursstefnu verið snúið við
og er þetta mót haldið til
þess að brautin teljist lögleg til Íslandsmeistarakeppni en 3. umferð
Íslandsmótsins fer fram í Sólbrekku
24. júlí. Skráning í þessa keppni fer fram á msisport.is og stendur
skráning opin til miðnættis fimmtudaginn
8. júlí. Keppnisgjald er 3000 fyrir 85cc, 4000 fyrir alla aðra flokka
nema MX Open en þar er keppnisgjaldið 5000
Tímatökubúnaður MSÍ verður notaður á þessari keppni og fyrir þá sem eiga
ekki senda er bent á Nítró með leigusenda.
Brautin verður í toppstandi og er þetta keppni sem engin keppandi í
Íslandsmótinu má láta fram hjá sér fara.
Sjáumst hress á laugardaginn.
kv. Mótstjórn VÍR.