Hertar reglur stjórnvalda

31.7.2020

Eins og flestir vita hefur heilbrigðisráðherra nú gefið út nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Auglýsingin tók gildi á hádegi í dag, 31. júlí, og gildir hún til 13. ágúst.

Helstu tilmæli sem snerta akstursíþróttir á þessum tímabili:

  • Takmörkun á fjölda einstaklinga sem kemur saman miðist við 100 fullorðna.
  • Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi verði viðhöfð sú regla að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga en að sú ráðstöfun verði ekki lengur valfrjáls. Þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra fjarlægð milli ótengdra einstaklinga með fjöldatakmörkun verði krafist notkunar andlitsgrímu sem hylur nef og munn.
  • Vinnustaðir, opinberar byggingar, verslanir og þjónustufyrirtæki sem eru opin almenningi skipuleggi starfsemi sína í samræmi við ofangreint og tryggi að ekki séu fleiri en 100 einstaklingar í sama rými og að í minni rýmum séu ekki fleiri en svo að hægt sé að tryggja 2 metra fjarlægð milli einstaklinga.

ÍSÍ óskaði eftir nánari útlistun frá sóttvarnarlækni varðandi íþróttastarfsemi fullorðinna og fékk rétt í þessu til baka tilmæli um eftirfarandi:

  1. Að gert verði hlé á æfingum og keppni í íþróttum með snertingu til 13. ágúst næstkomandi eða þar til núgildandi auglýsing um takmarkanir á samkomum fellur úr gildi.
  2. Að æfingar og keppni í íþróttum án snertingar haldi áfram eftir því sem hægt er, að virtum reglum um fjöldatakmarkanir og nálægðarmörk skv. auglýsingu heilbrigðisráðherra.
  3. Að sameiginlegur búnaður verði sótthreinsaður milli notkunar/notenda.

Keppnir og æfingar á mótorhjólum geta því haldið áfram, þó því miður verði það í einhverjum tilvikum án margra áhorfenda.

Stjórn MSÍ hvetur keppendur og áhugafólk um mótorhjóla- og snjósleðaíþróttir til að fara eftir tilmælum stjórnvalda um samkomubann, fjarlægðarviðmið og hreinlæti.

Sýnum ábyrgð!