1.& 2. umferð í Íslandsmótaröð MSÍ fer fram laugardaginn 16. maí. á
félagssvæði VÍK við Bolaöldu.
Keppnisfyrirkomulag er með óbreyttu móti frá síðasta ári en ákveðið
hefur verið að keppnisbraut fyrir B-flokk á að vera öllum keppendum fær og
keppnisbraut fyrir Meistaraflokk á að vera öllum keppendum í Meistara og
Tvímenningsflokk fær.
Þetta þýðir heldur léttari keppnisbrautir en sú þróun sem verið hefur síðustu ár.
Einnig verður gerð smávægileg breyting á dagskrá að því leyti að Meistaraflokkur
og Tvímenningur munu ræsa fyrstir á keppnisdag en ekki B-flokkur eins og verið hefur.
Nú verður hægt að skrá sig sérstaklega í B-85cc, B-Kvennaflokk og B-40+ flokk
og keppa þessir flokkar með B-flokknum.
Til þess að viðkomandi flokkur teljist gildur þarf minnst 5 keppendur og verða þá veitt
sérverðlaun fyrir viðkomandi flokk.
Í B-flokk verða veitt verðlaun fyrir 1.2. og 3. sæti yfir heildina eins og verið hefur
en einnig verða veitt verðlaun sérstaklega fyrir 1.2. og 3. sæti í ofangreindum
flokkum miðað við að það náist 5 keppendur eða fleiri.
Hafinn er undirbúningur að brautarlagningu á félagssvæði VÍK við Bolaöldu
og svæðið lítur vel út og kemur vel undan vetri.
Leitast verður við að leggja nýjar brautir og lagfæra gamlar.
B brautin verður heldur styttri en fyrir Meistaraflokk og Tvímenning sem munu
nota B brautina ásamt tveimur auka slaufum sem bætt verður við.
Markmiðið við brautarlagninguna er að hafa skemmtilega tæknilega
keppnisbraut sem er þó ekki með ókleifum hindrunum sem keppendur lenda í
vandræðum með og einnig er tekið tillit til þess að ekki verði skemmdir á keppnistækjum.
Skráning í keppnina er á www.msisport.is og stendur til miðnættis þriðjudaginn 12. maí.
Þeir keppendur sem skrá sig í Tvímenning þurfa að skrá sig undir einu nafni og tilkynna
liðsfélaga á skraning@msisport.is
Skráning keppnisliða fer fram samkvæmt “Liðakeppnisreglum” MSÍ og þarf að senda inn skráningu fyrir keppnislið á skraning@msisport.is þar sem allar upplýsingar þurfa að
koma fram einnig þarf að millifæra greiðslu fyrir skráningu inn á reikning MSÍ
Reikn: 525-26–401270 kt: 500100-3540

