Íslandsmótið í Ískross 2014 á Mývatni 15. mars.

4.3.2014
1. og 2. umferð Íslandsmótsins í Ískross mun fara fram laugaradaginn
15. mars á Mývatni. Aðeins þessar tvær umferðir munu gilda til Íslandsmeistara
fyrir árið 2014. Lagðar verða 2 brautir og fer fyrri umferð fram fyrir hádegi og
sú seinni eftir hádegi. Tilboð verður á gistingu á Sel hótel og einnig verður tilboð
í Jarðböðin. Keppnisgjald er 7.500,- kr. fyrir báðar keppnirnar. Keppt er í 85cc flokki,
Kvennaflokki, Unglingaflokki, Vetrardekkjaflokki og Opnum flokki.
Dagskrá er að finna undir REGLUR hér á síðunni “Ísdagskrá 2014”
Nagladekk með karbít endum eru eingöngu leyfð í öllum flokkum, Opinn flokkur
eru sérsmíðuð skrúfudekk. Keppendur athugið hámarkslengd og fjölda á skrúfum.
Keppendur með of margar skrúfur eða of langar verður vísað úr keppni.
Skráning er opin til 11. mars kl: 21:00