Keppendur í B flokkum ATH !

12.5.2011

Keppendur í B flokkum í Enduro CC þurfa að greiða 1.000,- fyrir tímatökubóluna. Bólan er eign keppanda og nýtist í öllum B flokkum í Enduro CC Íslandsmótinu.

Keppendur eru vinsamlega beðnir að hafa greiðslu í 1.000,- seðli til að flýta fyrir afgreiðslu á keppnisstað, ekki verður tekið við greiðslu með kortum.

Keppendum er ráðlagt að taka með sér “svita” bönd eða sambærilegan búnað (teygju) til að festa “bóluna” við til að hafa um höndina.