Þeir sem hafa lesið motocrossdagskrá og reglur MSÍ fyrir keppnistímabilið 2007 hafa væntanlega tekið eftir skiptingu sem átti að eiga sér stað í MX unglingaflokki. Á keppnistímabilinu 2006 voru keppendur í MX unglingaflokki flestir 36, því var áætlað að það myndi fjölga í flokknum. Ákvörðun var því tekin að ef keppendur yrðu fleiri en 38 á ráslínu þá yrði tímatakan notuð og 24 hröðustu færu í MX unglingaflokk og keyrðu þrjú moto hinir færu í B – flokk og keyrðu tvö moto. Það var talið að þetta myndi gefa byrjendum kost á að vera með án þess að stofna sjálfum sér og öðrum í hættu. Reynslan hefur hinsvegar verið sú að það hefur frekar fækkað í MX unglingaflokki heldur en hitt. Hugsanleg ástæða getur verið að MSÍ hafi ekki kynt þetta fyrirkomulag nægjanlega vel.
MSÍ hefur því ákveðið fyrir síðustu umferð íslandsmótsins í motocross sem verður haldið 1. september að hafa sérstaka skráningu í MX unglingalokk – B. Fjöldi keppenda verður þó að ná minnst 38 til þess að skiptingin sé framkvæmanleg og hægt sé að halda allmennilegt moto í þessum flokki.