Nú er verðskrá MSÍ 2009 orðin aðgengileg undir “reglur” hér á síðunni. Skjalið er í PDF formi.
1. umferð Íslandsmótsins í Ís-Cross var haldin af AM á Mývatni laugardaginn 17. janúar. Öll vinna og framkvæmd við mótið var til fyrirmyndar. Úrslit voru kominn á netið strax um kvöldið og strax á mánudagsmorgun barst stjórn MSÍ uppgjör fyrir keppnina á excel skjali, fjöldi keppanda, flokkaskipting, nafn og bankareikningur aðildarfélags ásamt upplýsingum um tímatökustjóra. […]
Laugardaginn 17. janúar fór fram 1. umferðin í ískross mótaröð vetrarins hér í Mývatnssveit og gekk alveg æðislega vel. Aðstæðurnar voru frábærar, rétt undir frostmarki og glæsilegt veður. Brautin var hrikalega skemmtileg og var um 2,1 km að lengd, vel breið og öll í beygjum. Rúmlega 40 keppendur voru skráðir til leiks og var hörku […]
Nú er keppnisdagatal MSÍ 2009 orðið aðgengilegt undir “reglur” hér á síðunni. Skjalið er í PDF formi. Á næstunni munu svo koma inn dagskrá fyrir mótaraðir í Íslandsmótinu.
Ágætu félagar. Verkefnasjóður ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir jan.-júní 2009. Um er að ræða styrki sem veittir eru til einstaklinga sem sækja námskeið/fræðslu um íþróttaþjálfun erlendis á fyrrgeindu tímabili. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar nk. og skal umsóknum skilað á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á heimasíðu ÍSÍ, […]
KEPPNISDAGATAL MSÍ 2009 Grein: Dagsetning: Mótaröð: Staðsetning: Aðildarfélag: Ís-Cross 17. Janúar. Íslandsmót Mývatn AM Ís-Cross 14. Febrúar. Íslandsmót Mývatn AM Snocros 28. Febrúar. Íslandsmót Reyk/Ak/Ól. KKA Ís-Cross 14.Mars. Íslandsmót Mývatn AM Snocros 14. Mars. Íslandsmót Mývatn KKA/AM Snocros 4. Apríl. Íslandsmót Reyk/Ak/Ól. KKA Snocros 25. Apríl. Íslandsmót Egilsstaðir KKA Enduro 16. Maí. Íslandsmót Bolalda […]
Þeir notendur sem hafa aðgang að Felix kerfi ÍSÍ geta notað sama notendanafn og lykilorð á MSÍ vefnum. Þeir félagsmenn sem skráðir eru í Felix en hafa ekki aðgang geta virkjað aðgang sinn inni á Felix.is. Eftir u.þ.b. 20 mínútur eftir skráninguna á Felix er hægt að nota nýja aðganginn hér til að skrá sig […]
Fyrsta umferð Íslandsmótsins í Ís-Cross fer fram á Mývatni laugardaginn 17. janúar. ATH. að skráningu líkur um miðnætti þriðjudaginn 13. janúar. ekki er seinni skráningarfrestur og það er ekki hægt að skrá sig á staðnum. Keppendum er bent á að skrá sig tímanlega þar sem ekki er tekið við neinum skráningum eftir að skráningu er […]
Í byrjun desember var auglýst eftir aðildarfélagi til þess að halda 2. umferð í MX sem fer fram 4. júlí. Ein umsókn um keppnina barst frá VÍK og hefur þeim verið úthlutuð keppnin til framkvæmdar. Samkvæmt umsókn VÍK stendur til að halda keppnina í brautinni eins og hún hefur verið keyrð, strax að loknu móti […]
Sælt veri fólkið og gleðilegt ár ! Nú eru tæpar tvær vikur í fyrstu umferðina í N1 Íslandsmótinu í Ískrossi sem fram fer á Mývatni þann 17. janúar næstkomandi Búið er að opna fyrir skráningu á www.msisport.is og lýkur skráningu á miðnætti á þriðjudagskvöldið 13/1. Keppnisgjöld eru kr. 5000 í hvern flokk, en keppt verður […]