Signý Stefánsdóttir er íþróttamaður HSÞ 2012

12.3.2013

Í umsögn um Signý Stefánsdóttur segir þetta:

Signý hefur á undanförnum árum unnið fjölda Íslandsmeistaratitla í akstursíþróttum, m.a. í ískrossi, motocrossi og þolakstri. Hún var valin akstursíþróttakona ársins árið 2008 hjá MSÍ, keppti erlendis í heimsmeistaramóti kvenna í motocrossi árið 2009 og endaði í 27. sæti. Var töluvert frá keppni árið 2010 vegna meiðsla, en varð Íslandslandsmeistari í ískrossi árið 2011 og nú á síðasta ári varð hún Íslandsmeistari í öllum greinum sem keppt var í á vegum Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands og var að auki valin akstursíþróttakona ársins 2012.

Signý Stefánsdóttir er fædd 8. nóvember 1993 og er því 19 ára. Hún hefur búið í Mývatnssveit í rúm 8 ár, en stundar nú háskólanám við Háskólann á Bifröst. Signý lauk stúdentsprófi á 3. árum frá Verkmenntaskólanum á Akureyri vorið 2012. Signý er afar metnaðarfull ung kona og auk þess að stunda háskólanám, þá leggur hún stund á flugnám hjá Flugskóla Akureyrar og lauk sólo prófi þaðan í ágúst síðastliðnum. Akstursíþróttafélagi Mývatnssveitar þykir Signý vera verðugur fulltrúi Þingeyinga í kjörinu um íþróttamann ársins 2012 hjá HSÞ.