Skráning í 1. & 2. umferð Íslandsmóts MSÍ í Enduro sem fer fram í Bolöldu 17. maí. mun hefjast kl. 14:00 á þriðjudaginn 13. maí á www.msisport.is Vegna síðbúinnar ákvörðunar stjórnar MSÍ að færa leigu og sölu á AMB tímatökusendum til Nítró ehf. þá hafa skapast þá hafa skapast tæknileg vandamál vegna skráningar á netinu og byðst stjórn MSÍ afsökunar á þessu. Skráning í þessa keppni mun því standa til kl. 23.55 á miðvikudaginn 14. maí. Þeir keppendur sem ekki eiga TranX 260 tímatöku sendir og þurfa á leigu sendir að halda er bent á að hafa samband við Nítró á þriðjudaginn 13. maí og skrá sig á leigu sendir.
Þessi 1. & 2. umferð Íslandsmótsins í Enduro er haldin í Bolöldu, akstursíþróttasvæði VÍK v/ Litlu Kaffistofuna. Brautin sem verður lögð verður um svæðið fyrir ofan motocrossbrautina og mun verða öllum B flokks ökumönnum fær. Sér kaflar verða lagðir með krefjandi þrautum fyrir A flokk og ættu allir keppendur hvort heldur sem þeir keppa í B eða A flokk að fá skemmtilega keppnisbraut.
með kveðju, Stjórn MSÍ.

