Uppfærðar Motocross reglur fyrir keppnistímabilið 2008

29.5.2008
Uppfærðar Motocross reglur fyrir keppnistímabilið 2008 hafa verið birtar á www.msisport.is. Eftir að reglurnar voru birtar 20.05.2008 kom í ljós villa varðandi MX 2 flokk varðandi vélastærð, þetta hefur verið lagfært og skal tekið fram að hámarks stærð vélar í MX 2 flokk er 150cc 2T og 250cc 4T, sömu reglur gilda um hámarksstærð véla í Unglingaflokk. Einnig hefur verið leiðrétt tilvísun í reglugerð Samgönguráðuneytis um reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni, sjá reglugerð 507/2007. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

Keppendum, keppnishöldurum og öðrum sem málið varðar skal bent á að aðeins er hægt að tryggja að reglur sem vistaðar eru undir “reglur” á www.msisport.is séu nýjustu reglur hvers tíma og þær séu uppfærðar ef breytinga er þörf. MSÍ getur ekki ábyrgst að reglur sem hafa verið vistaðar á öðrum heimasíðum séu nýjustu eintök sem eru í gildi.

Enduro & Moto-Cross nefnd MSÍ