Vörugjald af keppnisbifhjólum fellt niður

18.12.2010
  Stjórn MSÍ frétti af því fyrir tæpum tveimur mánuðum að til
stæði að breyta lögum um innflutningsgjöld af ökutækjum.
Eftir góðan undirbúning stjórnar MSÍ héldu Karl Gunnlaugsson formaður MSÍ
og Jóhann Halldórsson stjórnarmaður MSÍ á fundi með fulltrúa fjármálaráðuneytis
og einnig með efnahags og skattanefnd Alþingis.
Á þessum fundum var óskað eftir því að vörugjöld af keppnisbifhjólum yrðu
feld niður til samræmis á við keppnisbifreiðar. Einnig voru lögð fram skrifleg
rök og greinargerð hvernig þessum málum væri háttað á Norðurlöndunum og farið
yfir það mikla ungliðastarf sem er í gangi innan aðildarfélaga og vébanda MSÍ.
Þessi vinna hefur skilað þeim árangri að frumvarpið hefur tekið breytingum
á þann veg að keppnisbifhjól verða undanþegin 30% vörugjaldi.
Tillögur MSÍ hljóða upp á að moto-cross keppnishjól í öllum stærðum falli
undir þessa skilgreiningu. Moto-cross keppnishjól sem flutt verða inn til landsins án
gjalda verður eingöngu leyft að nota á samþykktum akstursíþróttasvæðum,
ef slíkt hjól er notað utan slíkra svæða getur eigandi þess átt á hættu að
verða krafinn þeirra gjalda sem á hjólið hefðu fallið auk álags og sektar.
Gera má ráð fyrir því að ca. 1.500.000,- hjól lækki í verði um ca. 350.000,-
og reikna má við því að ef slíkt hjól væri notað utan viðurkendra akstursíþróttasvæða
gæti viðkomandi átt á hættu sektargreiðslu allt að 800.000,-
Það verður mikil ábyrgð þeirra sem stunda sportið og nýta sér vörugjaldslaus
moto-cross keppnishjól að þeir fari eftir þeim lögum og reglugerðum sem koma til.
Þessi niðurfelling er ekki hugsuð til að ná til Enduro hjóla sem eru skráð á hvít númer.
Um MSÍ:
MSÍ er 13. stærsta íþróttasamband innan ÍSÍ af 28 samböndum, véhjólaíþróttir eru
14. stærsta íþróttagrein innan ÍSÍ af 44 íþróttagreinum. Innan MSÍ starfa rúmlega
20 aksturíþróttafélög um land allt og u.þ.b. 20 samþykkt aksturíþróttasvæði eru á Íslandi

Virðingarfyllst.
f.h. Stjórnar MSÍ
Karl Gunnlaugsson
Formaður